hugrenningar öllu jóns

anna hafþórs og sandra björk

08.07.2009 15:34:01 / ahsbb

Vó!

Nú hlýtur einum og öðrum að hafa brugðið. Alla bara orðin fagurrauð. Endilega tjáið ykkur um málið.

Anna

» 2 hafa sagt sína skoðun

07.05.2009 14:55:25 / ahsbb

neeei ha?

Jæja nú ætlar Alla að koma með smá comeback. What'up!
Svaf til 1 í dag. Ég er atvinnulaus. En bara þangað til um miðjan júní þannig að þetta er bara kósý. Ég hlakka svo til í sumar! Vil bara minna ykkur öll á það að ég (og meira að segja Sandra líka) verð alltaf í fríi um helgar í allt sumar. Meðal þess sem er á dagskránni fyrir sumarið er: Fara á lunga, fara á innipúkann, læra að skate-a hehe, fara í frísbí, tana mig bigtime (djók) og fullt fleira. 

bleeee

ANNA

» 1 hafa sagt sína skoðun

13.01.2009 15:39:13 / ahsbb

er ekki tími tilkominn að tengja...

Nú er janúarafmælistörnin byrjuð. Hulda er alltaf fyrst, hún á afmæli í dag. Til hamingju með það elskan mín. Þótt þetta sé allt mjög gleðilegt og allt það þá er þetta líka um leið pínu eins og blaut tuska í andlitið: 21! haaa? Hvenær varð ég svona gömul? Hvernig gerðist það? Hvað varð um 16, 17, 18 og 19 ára til dæmis? Það er bara svona eins og það hafi allt verið eitt ár ég ætla að kalla það njátján ára. Þegar ég var njátján ára þá hélt ég að ég væri í blóma lífsins en ég held að það sé blekking. Ég held að blómi lífsins sé á milli tvítugs og þrítugs og því vil ég meina að ég sé að skríða inn í þennan svokallaða blóma lífsins eftir 12 daga og síðasta ár hafi verið undirbúningur. Undirbúningstímabil eru alltaf erfið. En blóminn gerir það allt þess virði. Jájá


Mamma er að fara á efir. Hún er að fara aftur til elsku Perpignan og skilur mig eftir í frostinu. Vá hvað það er kalt í dag! Ég keyri hana út á flugvöll á eftir, ég á pottþétt eftir að fara að gráta, ég sé hana ekki aftur fyrr en í júní! Kannski komin tími til að ég sleppi hendinni af mömmu. Haha


Ég er að spá í að byðja pabba að gefa mér ljósmyndanámskeið í afmælisgjöf. Ég tók áhugasviðspróf í M.A og fékk út að ég ætti að verða ljósmyndari. Löngu komin tími til að reyna á það. Mér finnst ótrúlega gaman að skoða ljósmyndir og mér finnst gaman að taka myndir og breyta þeim í tölvunni en það er alltaf allt svo mikið amateur. Nú er komin tími til að láta til skara skríða. Svo kaupi ég mér 200.000 kr. Myndavél og æli.


Akureyri er fínn og elskulegur bær.


Nú væri ég til í að eiga kærasta.

Nú væri ég til í að vera ekki að vinna svo ég gæti verið með í leikritinu sem saga er að fara að setja upp.

Nú væri ég til í að 4 daga fríið mitt væri ekki búið eftir daginn í dag.

Nú væri ég til í að eiga hitakúluna sem við vorum alltaf að tala um í grunnskóla.

Nú væri ég til að það væri 26. apríl.


Kveðja,

Anna


» 10 hafa sagt sína skoðun

17.12.2008 19:27:05 / ahsbb

útrásarljóð

Nístir eins og eitthvað beitt

og krafsar á undarlega staði

sem ég vissi ekki einu sinni að gætu meitt.

Um leið og ég velti fyrir mér hver ræður

og hvernig allt er háð öllu öðru eins og samanvöndlaðar slæður

flæði ég um í minningum sem allt í einu eru sárar.

Ekkert aftur neitt

er löngu búið að ákveða hvenær maður klárar?

Mér þykir þetta svo leitt.

Ótti og óraunvöruleiki sem sameinast í þokukennda sorg

mig langar upp í þessa skýjaborg

þar sem þú ert að hlægja

en ég verð víst að láta mér nægja

að geyma það í sérstöku hólfi í huganum

merktu þér.

Hólfið er glansandi rautt

og þar er allt svo fallegt

sérstaklega þú sjálfur.



Anna Haff


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.11.2008 17:05:25 / ahsbb

Tilkynningar

Anna er komin heim og er að vinna á kassa í Bónus


Sandra


» 6 hafa sagt sína skoðun

15.11.2008 12:44:51 / ahsbb

Skrítið fólk á youtube

Eftirfarandi samtal átti sér stað í gær milli mín og Lindu á msn:

lindaarsaels@gmail.com says />

hahh ég verð að segja þér fyndið en samt ljótt sem ég hugsaði í morgun />

lindaarsaels@gmail.com says />

sá gamla konu með gamla manninn sinn í hjólastól sem var eittvað ekki í þessum heimi />

lindaarsaels@gmail.com says />

og hún var að fara í búðina og setti bara hjólastólinn í bremsu og skildi hann eftir þá hugsaði ég vá hvað það væri findið ef ég myndi stela gamla manninum />

Sandra Bjork says />

hahahahahahhahaha />

Sandra Bjork says />

vá hvað það hefði verið fyndið!!! />

Sandra Bjork says />

kemur heim til fjölskyldunnar þinnar þarna úti með gamlan mann í hjólastól sem er ekki í þessum heimi />

Sandra Bjork says />

og segist hafa fundið hann />

Sandra Bjork says />

hahahahah />

lindaarsaels@gmail.com says />

er ykkur ekki saman þótt ég geymi hann kanski í herberginu mínu? />

lindaarsaels@gmail.com says />

já eða má ég hafa hann í kjallaranum! />

Sandra Bjork says />

hahahah />

Sandra Bjork says />

með gamlann mann alltaf hjá sér inní herbergi />

Sandra Bjork says />

 breiðir bara svona teppi yfir hann á nóttunni eins og með páfagaukana />

lindaarsaels@gmail.com says />

hahah já vá hvað þau halda örugglega að ég sé eitthvað skrítin núna ég er búin að hlægja svo mikið upphátt


Áður en þetta kom vorum við búnar að tala heillengi um áhuga okkar á að skoða skrítið fólk á youtube og skiptumst á linkum og svo töluðum við líka um skytterí í smástund...mjög gefandi allt saman!


Kv. Sandra


Ps. Ég hef ekki hugmynd um afhverju þessir blessuðu broskallar koma hérna í hverri einustu línu...
/>



» 5 hafa sagt sína skoðun

03.11.2008 15:11:05 / ahsbb

Skrif

Það má segja að það að vera atvinnulaus sé full vinna. Full vinna við að halda sönsum. Eitthvað verður maður að reyna að gera til að missa ekki vitið. Hvað kemur manni fram úr rúminu á morgnanna. Jú sólin vissulega. Ég og mamma eru nefnilega búnar að gefast upp á atvinnuleit, ætlum að sjá hvort það komi eitthvað út úr öllu sem við erum búnar að gera en ef ekki þá ætlar pabbi að reyna að finna vinnu handa mér á Íslandi. þannig að núna er ég nokkurnvegin aðgerðarlaus. Er búina að lesa þrjár skáldsögur og er byrjuð á þeirri fjórðu. Ekki á frönsku nei, heldur var Sirrý svo elskuleg að koma með nóg af lestrarefni þegar hún kom í heimsókn  og síðan frönskunámskeiðið kláraðist hef ég sökkt mér ofan í það.
Ef ég þarf að fara heim með hvíta flaggið flögrandi í vindinum þá missi ég af Parísarferðinni í lok nóvember sem ég var búin að hlakka svo til, þá þarf ég að fara að vaða snjó og vera með blautar buxnaskálmar og fæ ekki að djamma aftur með spánverjunum mínum. Það eru samt að sjálfssögðu líka hellingur af kostum við að fara heim. Það að hitta aftur elsku elsku vinkonur mínar og fjölskylduna sem er heima er þeirra stærstur og er virkilega freistandi.
Ég er samt ekki alveg búin að gefast upp, eitthvað gæti allt í einu komið upp. Kannski kemur vinna hlaupandi til mín á síðustu stundu og býður mér að stökkva á bak. hver veit hver veit? enginn.

Hvað haldiði að hafi gerst um daginn! guð ég er ennþá að jafna mig. Ég sat með spænsku stelpunum á kaffihúsi, við vorum að fara að heimsækja lítinn bæ rétt hjá Perpignan og vorum að bíða eftir lestinni. Þegar við stöndum upp til að fara að borga finnst mér ég heyra kunnuleg orð af næsta borði, fannst jafnvel eins og þau væru íslensk. Ég reyni að labba löturhægt framhjá borðinu og vitið menn, þarna sátu íslensk hjón og ræddu það hvað þau ættu að fá sér í gogginn! Ég stóðst ekki mátið og gaf mig á tal við íslendingana sem voru ekki síður hissa á að hitta mig. Mér fannst ég ekki kunna íslensku lengur. En það var bara vegna þess að það var svo undarleg tilfinning að vera að tala við ókunnuga án þess að vera að reyna að setja saman setningu á frönsku eða tala ensku. Mig langaði mest bara að tala ensku við þau! haha neinei. Íslenska er best. Ísland er best.
Ég ætla í smá sólbað....

Anna


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.10.2008 11:40:31 / ahsbb

trés bien


Það er svo heitt í dag að ég er að kálast!
Nú er ég byrjuð á frönskunámskeiði. Ég tók eitthvað stöðupróf um daginn þar sem ég var metin á eitthvað sérstakt level og svo í fyrsta tímanum þá byrjuðum við á því að taka aftur próf og hópnum var skipt í tvo hópa og ég, ásamt einni breskri konu á eftirlaunum og kínverskum strák vorum saman. við erum sem sagt betri en hinir, sem kom mér virkilega á óvart þar sem ég er mjög riðguð í frönskunni sem ég lærði í menntaskóla sem var þó ekki mikil fyrir. En þetta er partý. í dag voru samt einhverjar 3spænskar og mjög hressar stelpur með okkur í tíma. Veit ekkert af hverju samt, enda skil ég svona sirka helminginn af því sem kennarinn segir. Á eftir er einhver ferð um borgina og einhvern tíman í næstu viku fer ég í vínsmökkun...nema það sé á eftir. En guð hvað ég hlakka til þegar ég get haldið uppi samræðum á frönsku! þá verður lífið aðeins auðveldara.
Sirrý og Sveinn (systir mömmu og maki) komu um helgina í heimsókn, það var ótrúlega gaman að fá gesti, ég sakna þeirra strax! Þau voru líka alltaf að kaupa eitthvað gúmelaði sem við njótum góðs af ennþá.


Annars er ég bara ennþá aumingjans atvinnuleysingi. Ég sótti um á Quick sem er frönsk eftirlíking af McDonald's og á McDonald's einmitt líka....já maður kemur sjálfum sér sífellt á óvart í lífinu. Ef ég verð sveittur hamborgarasteikingarmaður með asnalegt der þá á ég eftir að hlægja fyrst smá, átta mig svo á því að ég hef náð botninum og gráta smá ofan í franskarnar en taka svo gleði mína upp á ný og bjóða öllum collegunum í partý.



Pastís-tími sem hefst svona um hálf 6 og 6....Fordrykkur sem er yfirleitt drukkinn ásamt bagettu....



Takið eftir skófarinu...

Ég gúglaði "íslendingur í perpignan" (já ég hef ekkert að gera og já ég er einmanna) og þá kom upp einhver gömul frétt af mbl um íslenskann mann sem var handtekinn hér í Perpignan fyrir að reyna að smigla dópi. Merkilegt. En ég gat sem sagt ekki fundið mér vin á google...ég held virkilega að við tvær séum einu-og þá meina ég eiiinu!- íslendingarnir hérna í borginni og meira að segja í frekar stórum radíus út frá henni...það er svolítið fyndin tilhugsun.

Þangað til næst...
Anna


» 10 hafa sagt sína skoðun

02.10.2008 21:48:50 / ahsbb

parlez-vous anglais?

Hææhæ!

Nú erum við búnar að eiga heima í íbúðinni okkar í 5 daga og mér finnst bara eins og við höfum alltaf átt heima hérna. Rosa fín. Annars líður mér ekki ennþá eins og ég eigi heima hér í Perpignan, það er líklegast af því að ég þekki ekki neinn ennþá hérna...það er vonlaust að ætla að kynnast fólki hérna þegar maður kann ekki frönsku. Stundum fer eitthvað fólk að tala við mann, kannski krúttlegur búðareigandi eða stelpa í strætóskýli og þá segi ég je suis desolé, je ne parle pas francais. Sem þýðir: því miður þá tala ég ekki frönsku. Og þá segja þau strax ó ókei...og gefa það alveg frá sér að ætla eitthvað að spjalla á ensku. Ef ég reyni það þá fá þau panic kast og reyna að forða sér eitthvað. Meira að segja eiga eigendur hótela og lobbý-fólk erfitt með að skilja mig, égmeinahalló eiga hóteleigendur ekki að geta talað ensku? Ja ég bara svona spyr.

En alla vega þá er ég að hugsa um að setja nokkrar myndir hér í þessa færslu. Hérna:

neibb myndirnar mínar eru greinilega yfir hámarksstærð eða það er það sem blogcentral vill meina þannig að ég finn út úr því og hef kannski bara næsta blogg eitt stykki mjög hressandi myndablogg. jaaahaaá

í dag þá var ég í sakleysi mínu að labba í átt að einu hóteli til að sækja um vinnu á. ég var í eigin heimi að labba eftir frekar stórri götu. sólin skein, ég var létt á fæti og vindurinn blés laust í gegnum hárið. þá er mér litið til hliðar og þar er maður sem er að klæða sig úr að ofan og kallar einhverja hluti á mig á frönsku um leið og hann sýnir mér geirvörturnar á sér (sem voru gataðar) og bringuhárin í allri sinni dýrð (eða dýrð og ekki dýrð). mér verður, eins og gefur að skilja, frekar brugðið og ég flýtti mér í burtu heldur þyngri á brún. síðan þegar ég kom að hótelinu þá dró ég djúpt andann, setti sparibrosið upp og undirbjó mig undir að vera hressa gellan sem vill ekki gera neitt annað í lífinu en að þrífa klósett og sturtubotna. þegar ég gekk inn var ég fljót að þurka brosið framan úr mér og forða mér út aftur því subbulegri stað hef ég sjaldan séð, t.d. var maður dauður fram á borðið á veitingastaðnum og ábyggilega klæðskiptingur á öðru borði. já ég hef eitthvað rambað inn í vitlaust hverfi þarna hehe

Mig langar svo að fara að versla að það er að drepa mig! Það eru ótrúlega flottar búðir hérna og ég skoða og jafnvel máta en veit að það er ekki sniðugt að vera að eyða peningunum mínu þar sem ég er ekki einu sinni komin með vinnu...samt leyfði ég mér að kaupa eina peysu í H&M í dag. röndótta gollu. röndótta af því að það er fransk. gollu af því að þær eru praktískar. og það er svo sætur strákur að vinna í H&M! og hann afgreiddi mig. það var voða gaman.

Svo er ég að fara til Parísar 27.nóvember. þar ætlum við að hittast ég og Arnrún og ég held Linda líka og þar ætlum við að hitta Björgu og vonandi Eygló og Dóru líka....vá ég hlakka tiiiil!

Annars hef ég ekki hlakkað svona mikið til jólanna síðan ég var 7 ára...eða nei ég hef held ég aldrei hlakkað eins mikið til jólanna! ég get ekki beðið eftir að skála í kokteil með stelpunum og ræða um atburði þessa aðskilnaðartímabils. það verður awesome!

Á morgun ætlar mamma að draga mig í bíó. ég mun ekki skilja neitt og trufla mömmu alla myndina til að spyrja hana hvað er að gerast en hún verður bara kyngja því súra slátri. Hér er nefnilega allt talsett sjáið til. Við höfum enn ekki rekist á bíó sem sýnir myndirnar upprunalegar, eða á ensku þannig að ég verð að sætta mig við þetta í bili.

love

Anna



» 10 hafa sagt sína skoðun

28.09.2008 19:45:30 / ahsbb

sandrabjorkb@hotmail.com

Jæja kæru vinir og aðrir velunnarar.
Eftir margra ára bið er loksins komið að því sem svo margir hafa beðið eftir. Ég er komin með msn...
Þá get ég loksins farið að tala við ykkur hvort sem þið eruð í Perpignan, Köben, London eða hvar þið nú eruð!
Ég skil að þetta eru mikil tíðindi og kannski ekki allir sem trúa þessu og halda að um einskæran hrekk sé að ræða, en ég fullvissa ykkur um að þetta er dagsatt.
Þá er bara um að gera að skrá mig sem vin (sjá fyrirsögn) eða skrifað mailið ykkar í athugasemd og ég skráð ykkur og við getum talað saman daginn út og inn, þ.e. um helgar og eftir kl. 17 virka daga.

Svo að lokum skora ég á Önnu að fara að blogga og segja okkur frá dögum sínum í France!

Kv. Sandra



» 5 hafa sagt sína skoðun

11.09.2008 20:34:45 / ahsbb

svei mér þá

Við erum enn á gistiheimilinu hans mr. Crumpy  (sem er samt alveg fyndinn gaur) en erum þó búnar að færa okkur um herbergi því svítan var það eina sem var laust. Við erum búnar að vera mjög örvæntingafullar í dag að leita að gistingu fyrir næstu nótt því við erum náttúrulega beisiklý á götunni. Við vorum áðan að versla morgunmat og ákváðum að kaupa okkur líka stóran poka af súru fimmáranammi og karamellur og áttuðum okkur allt í einu á því að við erum fátækar og heimilislausar konur að kaupa okkur nammi til að fara með á svítuna okkar...skrýtið. Eeeen núna erum við komnar með stúdíóíbúð í 9 daga á mjög viðráðanlegu verði í Canet sem er lítið þorp rétt hjá sem er í þokkabót á ströndinni og erum að fara að skoða íbúðir þar líka á morgun. Þá urðum við mjög hamingjusamar og erum núna að hakka í okkur nammið með bestu lyst

Hlakka til að sjá hvernig þetta þorp er á morgun. Það eru þrumur og rigning í fyrsta skiptið.

Fórum áðan á ótrúlega góðan veitingastað. Mamma fékk sér salat sem var víst mjög gott og ég fékk mér pizzu sem var með pepperoni, lauk, papriku, ólífum og spældu eggi. Það var held ég besta pizza sem ég hef smakkað.


Anna Haff

» 9 hafa sagt sína skoðun

08.09.2008 16:14:42 / ahsbb

augnablik

Við sitjum upp í herberginu okkar á krúttlega gistiheimilinu. Við erum íbúðarlausar og atvinnulausar en mjög hamingjusamar. Úti spila menn á harmónikku og klarinett frönsk lög og við liggjum upp í rúmi og lesum smáauglýsingar í dagblöðum og þýðum stjörnuspárnar okkar (mín passaði óhugnarlega vel í einu blaðinu). við löbbuðum um miðbæinn í dag í sólinni. Ég er smá brunnin á öxlunum eftir gærdaginn í barcelona. Við erum þreyttar en glaðar og bjartsýnar. Það er líka fullt af sætum strákum hérna þannig að allt er gott og blessað.

þangað til næst,

Anna


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.08.2008 09:19:42 / ahsbb


Allt er svo undarlegt þessa dagana. Allir eru að kveðjast og sjálf þarf ég að kveðja alla á næstu 11 dögum. Svo er eitthvað svo mikið að gera þannig að ég næ ekki einu sinni að velta þessu öllu saman fyrir mér. Tíminn bara líður og hlutirnir gerast.

Fór um daginn í sjósund í skapandi sumarstörfum með Önnu Richardsdóttur. Fyrstu 5 mínúturnar af sundinu hugsaði ég hvað í andskotanum ég væri að gera sjálfri mér þar sem ég ofandaði af kulda og rakst í marglittur hvað eftir annað með tilheyrandi öskri. En svo þegar ég var búin að synda í smá stund og líkaminn algerlega orðin dofin þá var þetta bara svolítið kósy. Svo eftir á þá leið mér ótrúlega vel, þetta er mjög frískandi.

http://www.engagerugbyleague.com/images/Perpignan.jpg
Perpignan...bara 12 dagar í sól, sumaryl og rómantíska frakka

Anna

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.08.2008 15:31:08 / ahsbb

skrifstofupartý

ég er þreytt, hlakkandi til, aðgerðarlaus, hlustandi, hugsandi, brúnaþung, ringluð, stressuð, kúplandi, vonsvikin, glöð, svarandi í síma, einum jaxli fátækari, svöng, með rafmagnað hár, alveg að fá náladofa í vinstri löppina, og fleira

Arnrún er farin til Kaupmannahafnar og guð má vita hvenær ég sé hana næst! jú um jólin...en það er samt ótrúlega langur tími miðað við það að við höfum nánast sést á hverjum degi í 10 ár! kannski ekki alveg á hverjum degi en svona um það bil...
ég fer 6. september..það eru ekki nema 22 dagar þangað til. gosh!

ég verð eiginlega að segja gróflega frá því þegar ég fór til tannlæknis í gær. Það var jaxl að troða sér upp vinstra megin uppi og það var langt frá því að það væri pláss fyrir hann en frekjan í honum olli mér miklum kvölum og eftir mikið væl og mikið af magnýl töfluáti þá pantaði mamma tíma handa mér hjá tannlækni. ,,Þú skreppur bara rétt úr vinnunni, hann ætlar bara að kíkja á þetta og meta stöðuna" sagði mamma og ég fór í sakleysi mínu upp á tannlæknastofu. Þegar hann var búin að skoða mig andvarpaði hann og sagði ,,Jaaá hann verður að fara..heyrðu ég er enga stund að kippa honum úr á ég ekki bara að gera það snöggvast" eins og það sé svipað og að skreppa út í bíl að sækja úlpu. Ég sagði bara jújú og lét ekki sjá hræðslublikið í augunum en það átti síðar eftir að koma úr felum þegar ég hélt að deyfingin væri að loka hálsinum á mér, sem var mjög langt frá því að vera að fara að gerast...en hann nær sem sagt í risasprautu og sprautar mig í tannholdið mér til mikillar ánægju þar sem sprautur eru og hafa alltaf verið mitt uppáhalds verkfæri (nei það er verkfæri frá helvíti) en þegar það var búið og ég hætt að finna fyrir öðrum helmingnum upp í mér (og hálsinn á mér að lokast) þá nær hann í risastóra og glampandi töng og veður með hana upp í mig og byrjar að jagga tönnina til. Ég ákvað að hugsa bara um regnboga og bleika pónýhesta á meðan hann djöflaðist með tönginni á tönninni. svo segir hann allt í einu ,,Aha!" og dregur glaður blóðuguan jaxlinn út úr mér og treður ofan í mig vatns- og blásrörunum sem koma líka velblóðug út úr mér aftur. Svo sagði hann bara já og setti bómul upp í mig og sagði bless.

ég er farin í kaffi
Anna Haff 

» 3 hafa sagt sína skoðun

05.08.2008 15:43:19 / ahsbb

almennt

Ég ætla að reyna að skrifa stundum hér inn á Öllu frá Perpignan...nú er bráðum bara mánuður í að ég fari. Það hlakkar í mér! Það verður alveg magnað að fá að hvíla sig á Akureyri og víkka aðeins sjóndeildarhringinn. Svo verður svo gaman að koma um jólin og hitta alla aftur! Þegar ég fer þangað þá verð ég nákvæmlega ekki neitt..ég verð ekki nemandi, ekki starfsmaður og verð ekki einu sinni í eigin landi. Ég mun ráfa um í eigin heimi og leita mér að vinnu og einhverju að gera og einhverjum að gera eitthvað með..haha það verður gaman.

Langt síðan ég hef átt svona skemmtilega verslunarmannahelgi, hún var alveg awesome!

bless
Anna Haff

» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12
Talning
Eftir 3879 daga
gerist eitt fyndið